1. Seljandi
Filmulist ehf., kt. 670223-0510, VSK-nr. 147962, Straumhellu 7u, 221 Hafnarfirði. Sími 867 5005, netfang filmulist@filmulist.is.
Kaupandi er sá sem gerir pöntun eða samþykkir verðtilboð. Sé kaupandi neytandi gilda jafnframt lög nr. 16/2016 um neytendasamninga og lög nr. 48/2003 um neytendakaup, og ganga þau framar þessum skilmálum ef þau veita neytanda ríkari rétt.
2. Pöntun og samningur
Samningur kemst á þegar þú hefur lokið pöntun í vefverslun og fengið staðfestingu frá okkur í tölvupósti, eða þegar þú samþykkir skriflegt verðtilboð. Við áskiljum okkur rétt til að hafna pöntun, til dæmis ef vara er uppseld, ef verð er augljóslega rangt skráð eða ef efni sem sent er inn uppfyllir ekki skilyrði 7. greinar. Sé pöntun hafnað eftir greiðslu er hún endurgreidd að fullu.
3. Verð og greiðsla
Öll verð á vefnum eru í íslenskum krónum og með 24% virðisaukaskatti. Verð getur breyst án fyrirvara, en pöntun er afgreidd á því verði sem gilti þegar hún var gerð.
Hægt er að greiða með greiðslukorti í gegnum greiðsluþjónustu Landsbankans, eða fá sendan reikning í heimabanka í gegnum Íslandsbanka. Reikningur er greiddur á eindaga sem kemur fram á honum. Kortaupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustunnar og Filmulist fær þær ekki.
Verð úr reiknivél fyrir uppsetningu er áætlun. Eftir uppmælingu færð þú fast verðtilboð og ef það er annað en áætlunin ræður verðtilboðið.
4. Afhending og sendingarkostnaður
- Hægt er að sækja pöntun án endurgjalds á verkstæðið í Straumhellu 7u. Við látum vita þegar hún er tilbúin.
- Heimsending kostar 1.500 kr. Hún er frí á höfuðborgarsvæðinu ef pöntunin er 10.000 kr. eða meira.
- Sending út á land kostar 1.500 kr. óháð upphæð.
- Afhendingartími fer eftir því hvað er pantað og birgðastöðu. Filmur og merkingar eru oftast tilbúnar innan viku, en skilti taka að jafnaði 3–5 vikur. Við látum þig vita ef afhending tefst.
Áhætta af vöru færist til kaupanda þegar hún er afhent honum eða þeim sem hann tilnefnir.
5. Vörur gerðar eftir máli
Sandblástursfilma, glermerkingar, veggmerkingar, límmiðar og prentaðir roll-up borðar eru framleidd sérstaklega eftir þeim málum, mynstrum og skrám sem þú gefur upp. Þú berð ábyrgð á að mál, fjöldi, staðsetning og innsendar skrár séu réttar. Forskoðun á vefnum gefur hugmynd um útlit en litir og hlutföll geta verið örlítið frábrugðin á skjá.
Ef þú ert óviss um mál getum við komið og mælt. Uppmæling er frí á höfuðborgarsvæðinu þegar við setjum upp.
6. Skilaréttur
Neytandi sem kaupir vöru í vefverslun getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá afhendingu án þess að tilgreina ástæðu. Tilkynna þarf okkur það skriflega, til dæmis í tölvupósti. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum, og kaupandi greiðir kostnað við að senda hana til baka. Við endurgreiðum kaupverð og upphaflegan sendingarkostnað innan 14 daga frá því að við fáum tilkynninguna, en megum bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist okkur.
Skilaréttur gildir ekki um vörur sem eru gerðar eftir forskrift kaupanda eða sérsniðnar að þörfum hans, samkvæmt 18. gr. laga nr. 16/2016. Það á við um allar vörur í 5. grein. Skilaréttur gildir því einkum um staðlaðar vörur eins og verkfæri.
7. Efni frá kaupanda
Þegar þú sendir okkur merki, myndir eða texta staðfestir þú að þú hafir rétt til að nota efnið og að það brjóti ekki gegn réttindum annarra. Við prentum eða skerum ekki efni sem er ólöglegt eða meiðandi. Innsendar skrár eru eingöngu notaðar til að vinna pöntunina, sjá persónuverndarstefnu.
8. Gallar og ábyrgð
Ef vara er gölluð skaltu láta okkur vita eins fljótt og hægt er eftir að gallinn kemur í ljós. Samkvæmt lögum um neytendakaup hefur neytandi tvö ár frá afhendingu til að kvarta yfir galla, og fimm ár ef varan á að endast verulega lengur. Við bætum úr galla með viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða endurgreiðslu eftir því sem við á.
Það telst ekki galli ef vara skemmist vegna rangrar uppsetningar af hálfu kaupanda, rangra mála sem kaupandi gaf upp, rangrar meðhöndlunar eða eðlilegs slits. Leiðbeiningar um uppsetningu og þrif eru á síðunni Spurt & svarað.
9. Uppmæling og uppsetning
Uppmæling er frí á höfuðborgarsvæðinu þegar við setjum upp. Tíma er hægt að bóka á netinu. Ef þú þarft að afbóka eða breyta tíma biðjum við þig að láta vita með að minnsta kosti 48 klukkustunda fyrirvara.
Við uppsetningu þarf flöturinn að vera aðgengilegur og hreinn. Um uppsetningu og aðra vinnu gilda lög nr. 42/2000 um þjónustukaup. Ef galli er á vinnu okkar bætum við úr honum án endurgjalds.
Filmur og hitaspenna í gleri. Filma á rúðu getur aukið hitaálag á glerið, einkum þegar sól skín á það. Ef rúðan er ekki rétt ísett, til dæmis ef hún situr þétt í karminum eða er með skemmdum eða sprungum í köntum, getur myndast spenna í glerinu og rúðan sprungið þegar hún hitnar. Ástand og ísetning rúðunnar er á ábyrgð eiganda og því getum við ekki tekið ábyrgð á sprungum í gleri sem rekja má til þessa, hvort sem filman er sett upp af okkur eða kaupanda. Þetta á ekki við ef tjónið verður rakið til mistaka af okkar hálfu. Ef þú ert í vafa um ástand rúðunnar er gott að ráðfæra sig við glerframleiðanda eða fagaðila áður en filma er sett á.
10. Ágreiningur og lög
Við reynum alltaf að leysa mál í góðu. Neytendur geta einnig leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi mál fyrir dómstólum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.