Frí uppmæling með uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu · Bókaðu tíma
Heim / Vefverslun

Vefverslun

Sandblástursfilma, glermerkingar, veggmerkingar og límmiðar eftir þínum málum, frá verkstæðinu okkar. Sæktu frítt í Straumhellu eða fáðu sent heim fyrir 1.500 kr. Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu fyrir pantanir sem eru 10.000 kr. eða meira.

Sérsniðið eftir máli

Sandblástursfilma eftir máli

Sláðu inn mál glersins, bættu við fleiri gluggum ef þarf og veldu mynstur. Við skerum filmuna tilbúna til uppsetningar eða komum og setjum hana upp.

Svona virkar vefverslunin
  1. 1Þú setur vörurnar í körfu og sendir pöntunina með kennitölu greiðanda. Engin greiðsla fer fram á vefnum.
  2. 2Við förum yfir pöntunina og svörum þér í tölvupósti með lokahönnun til samþykktar. Ef verðið breytist færðu fast verð áður en nokkuð fer í framleiðslu.
  3. 3Þegar þú hefur samþykkt framleiðum við vöruna og sendum reikning í heimabankann.

Vantar sérstaka stærð?

Allar vörur má sérpanta í öðrum stærðum og litum. Sendu okkur málin og við gerum tilboð.

Sækja á verkstæðið

Þú getur sótt pöntunina í Straumhellu 7u á miðvikudögum kl. 10–15 eða eftir samkomulagi. Við látum vita þegar hún er tilbúin.

Bóka fría uppmælingu