Frí uppmæling með uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu · Bókaðu tíma
Heim / Skiltagerð

Skiltagerð í Hafnarfirði

Filmulist er skiltagerð sem hannar, framleiðir og setur upp skilti fyrir fyrirtæki og einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu. Við smíðum plexiskilti, álskilti, baklýsta stafi, ljósaskilti, þrívíddarstafi og leiðarvísa á eigin verkstæði í Straumhellu.

Plexiskilti á vegg með merki Filmulist skiltagerðar
Tegundir skilta

Skilti fyrir hvert tilefni

Kringlóttur ljósakassi með merki Gigtarfélagsins á framhlið

Ljósakassar

Upplýstir ljósakassar, kringlóttir eða ferkantaðir, með merki fyrirtækisins. Sjást vel á framhliðinni, líka í skammdeginu.

ÚtiLýsing
Stórt auglýsingaskilti við götu

Álskilti

Sterk og endingargóð skilti sem þola íslenskt veður. Henta á framhliðar, við bílastæði og fyrir upplýsingar við götu.

ÚtiInni
Baklýstir stafir sem mynda Hotel Höfn

Baklýstir stafir

Ljós á bak við stafina myndar mjúka birtu á veggnum. Merkið sést vel í skammdeginu án þess að vera ágengt.

ÚtiInniLýsing
Upplýst skilti á framhlið verslunar í Reykjavík

Ljósaskilti og framlýst skilti

Skilti sem lýsa í gegnum framhliðina og sjást langt að. Fyrir verslanir, veitingastaði og þjónustu sem er opin eftir myrkur.

ÚtiLýsing
Svartir þrívíddarstafir á hvítum vegg

Þrívíddarstafir

Upphleyptir stafir sem lyftast af veggnum. Gefa merki fyrirtækisins dýpt í móttöku og verslunarrými.

Inni
Leiðarvísir með íbúðanúmerum fyrir gistiheimili

Leiðarvísar og hurðaskilti

Upplýsinga- og leiðarvísaskilti sem vísa fólki rétta leið um hótel, fjölbýlishús og stærri vinnustaði.

InniÚti
Samanburður

Hvaða skilti hentar þér?

GerðStaðsetningLýsingHentar best fyrir
PlexiskiltiInni og útiÁn lýsingarMóttökur, innganga og skrifstofur
ÁlskiltiÚti og inniÁn lýsingarFramhliðar, bílastæði og upplýsingar við götu
Baklýstir stafirÚti og inniLjós á bak við stafiMerki á framhlið eða í móttöku
LjósaskiltiÚtiLýsir í gegnum framhliðVerslanir og veitingastaðir sem eru opnir eftir myrkur
ÞrívíddarstafirAðallega inniÁn lýsingarVeggir í móttöku og verslunum
LeiðarvísarInni og útiÁn lýsingarHótel, fjölbýlishús og stærri vinnustaðir

Ertu ekki viss? Bókaðu tíma og við förum yfir staðsetningu, lesfjarlægð og lýsingu með þér. Verð fer eftir stærð, efni og lýsingu, og þú færð fast verðtilboð áður en vinna hefst.

Baklýstir stafir í smíðum á verkstæði Filmulist
Frá verkstæðinu

Smíðað í Straumhellu

Skiltin eru skorin, sett saman og frágengin á verkstæðinu okkar í Hafnarfirði. Á myndinni eru baklýstir stafir fyrir Hotel Höfn í smíðum.

Þegar við framleiðum sjálf getum við aðlagað stærðir, liti og festingar að hverju verkefni og fylgt því eftir alla leið að uppsetningu.

Ferlið

Svona verður skiltið til

Skref 1

Ráðgjöf

Við förum yfir staðsetningu, stærð og lýsingu, á staðnum eða í gegnum síma.

Skref 2

Hönnun og tilboð

Þú færð tillögu að útliti og fast verðtilboð. Ekkert er framleitt fyrr en þú samþykkir.

Skref 3

Framleiðsla

Skiltið er skorið og sett saman á verkstæðinu okkar í Straumhellu.

Skref 4

Uppsetning

Við setjum skiltið upp eða afhendum það tilbúið til uppsetningar.

Myndir

Skilti sem við höfum gert

Fá tilboð
Spurt & svarað

Almennar spurningar

Allar spurningar
Bóka fría uppmælingu