Glermerkingar fyrir fyrirtæki og stofnanir
Glermerkingar eru merki, texti eða mynstur skorin úr filmu og sett á gler: hurðir, glugga, glerveggi og skilrúm. Við hönnum, skerum og setjum upp glermerkingar frá verkstæðinu okkar í Hafnarfirði, fyrir fyrirtæki, stofnanir og húsfélög á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Faglegt útlit frá fyrstu sýn
Merkið þitt á inngangshurðinni eða glugganum er það fyrsta sem viðskiptavinir sjá. Við skerum merkið nákvæmlega eftir vektorskrá, í einum eða fleiri litum, eða sem matta sandblástursfilmu sem líkir eftir sandblásnu gleri. Útkoman er hrein og endingargóð merking sem lítur út eins og hún sé hluti af glerinu.
Hentar vel fyrir skrifstofur, verslanir, stofur og móttökur, og jafnt innan sem utan á gler.
Næði og merking í einu
Á glerhurðum og glerveggjum er oft gott að sameina tvennt: matta filmu sem veitir næði og merki eða texta sem segir hvað er á bak við hurðina. Við getum skorið merkið út úr sandblástursfilmunni, svo það verði glært, eða sett það ofan á í lit.
Herbergjanúmer, nöfn fundarherbergja og opnunartímar eru líka algengar glermerkingar.
Merkingar á glerveggi
Stórir glerveggir og glerhurðir geta verið erfiðir að sjá. Rendur, punktar eða merki í augnhæð gera glerið sýnilegt og draga úr hættu á að fólk gangi á það, án þess að loka rýminu. Við hjálpum þér að velja hæð og útlit sem passar við rýmið.
Hugmynd
Sendu okkur merkið, helst sem vektorskrá (AI, EPS, SVG eða PDF), og segðu okkur hvar merkingin á að vera.
Mæling og próförk
Við mælum glerið og sendum þér próförk með stærð og staðsetningu til samþykktar.
Skurður
Merkingin er skorin á verkstæðinu okkar í Straumhellu 7u í Hafnarfirði.
Uppsetning
Við setjum merkinguna upp á höfuðborgarsvæðinu, eða þú sækir hana tilbúna til uppsetningar.