Veggmerkingar og vegglímmiðar
Veggmerkingar eru merki, texti eða myndir skorin úr filmu og límd beint á vegg. Þær eru fljótleg leið til að gefa móttöku, skrifstofu eða verslun sterkt útlit. Við framleiðum veggmerkingar eftir máli í Hafnarfirði og setjum upp á höfuðborgarsvæðinu.
Merkið þar sem allir sjá það
Stórt merki á vegg í móttöku býður gesti velkomna og styrkir vörumerkið. Veggmerking er skorin úr filmu þannig að aðeins stafirnir og formin sitja eftir á veggnum, án bakgrunns. Útkoman lítur út eins og málað merki en er mun fljótlegri og ódýrari í framkvæmd.
Plexi og þrívíddarstafir
Viltu meiri dýpt? Þá eru plexistafir eða merki úr plexi eða áli fest á vegg góður kostur. Þau gefa skugga og þrívítt útlit sem passar vel í móttökur og fundarherbergi. Lestu meira um þrívíddarstafi á síðunni Skiltagerð.
Gildi, leiðbeiningar og skreytingar
Veggmerkingar eru líka notaðar fyrir gildi fyrirtækisins, tilvitnanir, leiðarvísa, herbergjamerkingar og skreytingar í skólum og leikskólum. Við skerum í þeim lit og stærð sem þú velur og getum aðlagað hönnunina að rýminu.
Hugmynd
Sendu merkið eða textann og mynd af veggnum, ef hægt er. Prófaðu merkið á vegg hér á síðunni.
Próförk
Við sendum þér próförk með stærð og lit til samþykktar.
Skurður
Merkingin er skorin á verkstæðinu okkar í Straumhellu 7u.
Uppsetning
Við setjum upp á höfuðborgarsvæðinu, eða þú færð merkinguna tilbúna til uppsetningar með leiðbeiningum.