Heim / Merkingar / Gluggamerkingar

Gluggamerkingar fyrir verslanir og fyrirtæki

Gluggamerkingar gera verslunina, stofuna eða skrifstofuna sýnilega frá götunni. Merki, opnunartímar, vefslóð, samfélagsmiðlar og árstíðabundnar skreytingar á glugga og framhlið, hannað og sett upp af Filmulist í Hafnarfirði fyrir fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.

Gluggamerkingar á framhlið hárstofu
Framhliðin

Glugginn er besta auglýsingin

Gluggi sem snýr að götu er auglýsing sem vinnur allan sólarhringinn. Með vel hannaðri gluggamerkingu sér fólk strax hvað þú býður upp á, hvenær er opið og hvernig það nær í þig. Við hjálpum þér að raða upplýsingunum þannig að þær lesist vel úr fjarlægð en loki ekki glugganum.

Gluggamerkingar með texta á verslunargluggum
Upplýsingar

Opnunartímar, vefslóð og samfélagsmiðlar

Algengustu gluggamerkingarnar eru merki fyrirtækisins, opnunartímar, símanúmer, vefslóð og tákn fyrir samfélagsmiðla. Allt er skorið úr filmu í þeim litum sem passa við vörumerkið, oftast hvítt eða svart sem sést vel á gleri.

Við getum líka sett QR-kóða sem vísar á bókunarsíðu, matseðil eða vefverslun.

Glerhurð með merki og mattri filmu
Árstíðir og tilboð

Auðvelt að skipta út

Gluggamerkingar eru ekki varanlegar. Það er hægt að fjarlægja þær og setja nýjar, til dæmis fyrir jól, útsölur eða ný tilboð. Viltu bæði næði og merkingu? Þá sameinum við sandblástursfilmu og merki í einni lausn.

Skref 1

Hugmynd

Segðu okkur hvað á að koma fram og sendu merkið. Við getum hjálpað til við uppsetningu textans.

Skref 2

Mæling og próförk

Við mælum gluggana og sendum þér myndræna próförk til samþykktar.

Skref 3

Skurður

Merkingin er skorin á verkstæðinu okkar í Hafnarfirði.

Skref 4

Uppsetning

Við setjum upp á höfuðborgarsvæðinu, oftast utan opnunartíma svo það trufli ekki reksturinn.

Spurt og svarað

Algengar spurningar um gluggamerkingar

Bóka fría uppmælingu