Heim / Merkingar / Límmiðar

Límmiðar eftir máli með þínu merki

Límmiðar með merki fyrirtækisins fyrir vörur, umbúðir, búnað, glugga og viðburði. Þú velur stærð og fjölda, setur inn myndina þína og pantar beint í vefversluninni. Við prentum og skerum límmiðana á verkstæðinu okkar í Hafnarfirði.

Límmiðar með merkjum, opið skilti og WiFi límmiði
Í hvað?

Vörur, umbúðir og búnaður

Límmiðar eru ódýr og sveigjanleg leið til að merkja vörur, umbúðir, poka, búnað, tölvur og bíla. Vinsælt er líka að nota þá fyrir WiFi-upplýsingar, „Opið“-merkingar, þakkarmiða í pakka og kynningarefni á viðburðum.

Límmiðar með merki Cargo Express
Eftir máli

Þín stærð, þitt form

Í vefversluninni velur þú breidd, hæð og fjölda og sérð verðið strax. Verðið er reiknað eftir fermetrum og er 12.400 kr. á m² með VSK, lágmark 1 m², svo þú getur pantað marga litla miða fyrir sama verð. Hægt er að bæta við glans- eða mattri plöstun sem ver prentið.

Skref 1

Settu inn mynd

Hladdu upp merkinu eða myndinni í vefversluninni. PNG, JPG og SVG virka.

Skref 2

Veldu stærð og fjölda

Sláðu inn mál og fjölda og veldu plöstun ef þú vilt.

Skref 3

Pantaðu

Settu í körfu og sendu pöntunina. Engin greiðsla fer fram á vefnum.

Skref 4

Við förum yfir

Við skoðum myndina og höfum samband ef eitthvað þarf að laga áður en prentun hefst.

Spurt og svarað

Algengar spurningar um límmiða

Bóka fría uppmælingu